Psalms 147

1Halelúja. Það er gott að leika fyrir Guði vorum, því að hann er yndislegur, honum hæfir lofsöngur. 2Drottinn endurreisir Jerúsalem, safnar saman hinum tvístruðu af Ísrael. 3Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, og bindur um benjar þeirra. 4Hann ákveður tölu stjarnanna, kallar þær allar með nafni. 5Mikill er Drottinn vor og ríkur að veldi, speki hans er ómælanleg. 6Drottinn annast hrjáða, en óguðlega lægir hann að jörðu. 7Syngið Drottni með þakklæti, leikið á gígju fyrir Guði vorum. 8Hann hylur himininn skýjum, býr regn handa jörðinni, lætur gras spretta á fjöllunum. 9Hann gefur skepnunum fóður þeirra, hrafnsungunum, þegar þeir kalla. 10Hann hefir eigi mætur á styrkleika hestsins, eigi þóknun á fótleggjum mannsins. 11Drottinn hefir þóknun á þeim er óttast hann, þeim er bíða miskunnar hans. 12Vegsama Drottin, Jerúsalem, lofa þú Guð þinn, Síon, 13því að hann hefir gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum, blessað börn þín, sem í þér eru. 14Hann gefur landi þínu frið, seður þig á hinu kjarnbesta hveiti. 15Hann sendir orð sitt til jarðar, boð hans hleypur með hraða. 16Hann gefur snjó eins og ull, stráir út hrími sem ösku. 17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola, hver fær staðist frost hans? 18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna, lætur vind sinn blása, og vötnin renna. 19Hann kunngjörði Jakob orð sitt, Ísrael lög sín og ákvæði. 20Svo hefir hann eigi gjört við neina þjóð, þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Halelúja.
Copyright information for Icelandic